Fyrri umferð þingskosninganna í Frakklandi er í dag. Seinni umferð verður næsta sunndag. Síðustu skoðanakannanir gefa vísbendingu um að nýr stjórnmálaflokkur forseta Frakklands Emmanuel Macron vinni sigur sem tryggi flokknum meirhluta þingsæta.
Forsetinn vann forsetakosningarnar fyrir fimm vikum og nú er að sjá hvort sá afgerandi sigur hafi áhrif á þingkosningarnar. Flokkur forsetans - REM - gæti unnið um 400 þingsæti í seinni umferðini en á franska þjóðþinginu eru 577 þingsæti.
Framboð þessa nýja flokks Emmanuel Macron er djarfur leikur í frönskum stjórnmálum en franskir kjósendur eru orðnir nokkuð lúnir á vanefndum og vangetu stjórnmálaflokka. Emmanuel Macron yngsti forseti Frakklands nokkru sinni endurvekur hugsanlega fölnaðan draum um forystu Frakklands í Evrópu.
rtá