Hinn 1.júni sl. var kveðinn upp í Hæstarétti dómur í máli VR gegn ríkinu vegna breytinga á lögum um atvinnuleysistryggingar sem komu til framkvæmda í byrjun árs 2015. Dómurinn féll VR í vil.
Hæstiréttur tekur þannig undir kröfu félagsins um að íslenska ríkinu hafi verið óheimilt að skerða stjórnarskárvarinn rétt hundruða félagsmanna VR til atvinnuleysisbóta með því að stytta bótatímabilið um sex mánuði eða úr 36 mánuðum í 30 mánuði. Vinnumálastofnun mun endurreikan bætur allra félagsmanna VR sem breytingin náði til á þeim tíma.
rtá
Nánar www.vr.is