Talsverð óvissa um úrslit

Síðasta skoðanakönnun sem breska fyrirtækið ICB gerði fyrir breska dagblaðið the Guardian sýnir að Íhaldsflokkurinn hefur nú 12% fylgisforskot fram yfir Verkamannaflokkinn. Þetta merkir á Íhaldsflokkurinn fær 46% greiddra atkvæða og Verkamannaflokkurinn fær 34% greiddra atkvæða.

Könnun sem ComRes fyrirtækið gerði fyrir breska dagblaðið Independent sýnir að forskot Íhaldsflokksins eru rösk 10% sem merkir að flokkurinn fær 44% greiddra atkvæða en Verkamannaflokkurinn fær 34%. Könnun ComRes sýnsir að þá fær Íhaldsflokkurinn 74 þingsæta meirihluta sem er stærsti þingmeirhluti flokksins frá því að Margaret Thatcher leiddi hann.

Öll kurl eru þó ekki komin til grafar því skoðanakönnun sem gerð var af Survation fyrir bresku sjónvarpsstöðina ITV spái að mjótt verði á mununum á milli flokkanna tveggja. Íhaldsflokkurinn fá 41,3% atkvæða en Verkamannaflokkurinn fái 40,4%. Þá fær Íhaldsflokkurinn ekki tryggan þingmeirihluta. 

Loks spáir könnun fyrirtækisins YouGov því að Íhaldsflokkurinn fái 42% og 302 þingsæti og Verkamannflokkurinn fá 38% og 269 þingsæti. Talsverð óvissa ríkir því um úrslitin. Kjörstaðir loka klukkan tíu í kvöld að staðartíma. Þá munu fyrstu útgönguspár birtast.    

rtá

Nánar www.openeurope.org.uk