Fjórflokkurinn

Þórður Snær Júlíusson skrifar fréttaskýringu um hinn klofna Fjórflokk. Þar er átt við óformlegt hugtaka um þyrpingu fjögurra flokka. Þeir eru Sjálfstæðisflokkur og Vinstri græn og Samfylking og Framsóknarflokkur.

Þóruður Snær fer vandlega yfir þann djúpstæða klofning sem sem hann segir vera innan Framsóknarflokksins. Þórður Snær skrifar að ástandið innan Framsóknarflokksins sé auðvitað eitthvaða sem allir stóru fjórir flokkarnir - Fjórflokkurinn - þekkja af eigin raun. Klofningurinn þar sé þó ekki endilega jafn persónulegur og jafn víðfeðmur og hjá Framsóknarflokknum.

Þórður Snær rifjar upp að Fjórflokkurinn fékk framan af lýðveldistímanum alltaf um og yfir 90% greiddra atkvæða. Þetta gjörbreyttist í kosningum árið 2013.

Þá datt fylgi Fjórflokksins niður í 74,9%. Í kosningunum árið 2016 féll fylgi Fjórflokksins niður í 62%. Í þeim kosningum fengu átta flokkar stofnaðir eftir 2012 38% greiddra atkvæða. Þar ber einna mest á flokki Pírata.

Þórður Snær segir það verða athyglisvert hvort nýji Sósíalistaflokkurinn muni ná að kroppa umtalvert fylgi af Vinstri grænum. Þeir hafa haft fjórðungs fylgi í könnunum undanfarið. Því er eftir miklu að slægjast því Vinstri grænir eru að mælast álíka stórir og Sjálfstæðisflokkurinn en hann hefur nær alltaf verið stærsti stjórnmálaflokkur landsins.

rtá

Nánar www.kjarninn.is