Fagnaðarlæti á flokksþingi framsóknar

Ljóst er að mikið verður um fagnaðarlæti á flokksþingi Framsóknarmanna sem hefst í fyrramálið. Í drögum að ályktunum þingsins er fagnað margvíslegum árangri ríkisstjórnar Sigmundar Davíðs. Þó er ekki minnst á fylgishrun flokksins samkvæmt skoðanakönnunum, enda lítið fagnaðarefni.


Í drögum að ályktunum flokksþingsins sem birt eru á vefsíðu flokksins er árangri ríkisstjórnar Sigmundar Davíðs fagnað í hverri málsgrein svo sem fyrir uppbyggingu efnahagslífsins og endureisn samfélagsins, leiðréttinguna sem og áherslum á rannsóknir, nýsköpun, heilbrigðis- og félagsmál.  


Ekki er þó ályktað um fylgi flokksins undanfarið undir styrkri stjórn Sigmundar Davíðs, enda ljóst að þar er um lítið fagnaðarefni að ræða. Þá er ekki minnst á þá stöðu sem nú er uppi á vinnumarkaði né þau verkföll sem standa yfir eða eru yfirvofandi því slíkt gæti sljákkað í fögnuði Framsóknarmanna sem kunna að skemmta sér, líkt og myndbönd sem deilt hefur verið á samfélagsmiðlum bera vitni um.  


Það er þó mikið tilhlökkunarefni að fylgjast með afhendingu Bjartsýnisverðlauna Framsóknarflokksins 2015 sem veitt eru rétt fyrir hádegi.  Fróðlegt verður að vita hvort þau kunni að tengjast á einhvern hátt fylgisaukandi herbrögðum flokksins næstu misseri.