Enginn þingmaður fái oddvitasæti

Félag ungra jafnaðarmanna hefur sent frá sér ályktun þar sem stungið er upp á róttækri leið til að tryggja endurnýjun í þingflokki Samfylkingarinnar. Vilja ungir jafnaðarmenn að enginn sitjandi þingmaður taki oddvitasæti á framboðslistum í komandi þingkosningum.

Í ályktun flokksins segir: \"Engin endurnýjun átti sér stað í þingflokki Samfylkingarinnar í alþingiskosningum 2013. Ef skoðað er fylgi Samfylkingarinnar eins og það mælist í dag er útlit fyrir að það sama verði uppi á teningnum í næstu kosningum. Það er vilji landsfundar Samfylkingarinnar að enginn sitjandi þingmanna Samfylkingarinnar taki oddvitasæti á framboðslitum í komandi þingkosningum. Með þessu er tryggt að endurnýjun verði sett í fyrsta sæti. Bæti Samfylkingin við sig fylgi fram að kosningum eiga sitjandi þingmenn greiða leið aftur inn á Alþingi, hafi þeir hlotið brautargengi meðal flokksfélaga sinna í flokksvali.\"

Formannskjör er framundan hjá Samfylkingunni og hefur formaðurinn Árni Páll Árnason sóst eftir endurkjöri en flokkurinn hefur hrunið í fylgi undir hans stjórn.

\"\"