Enginn meðmæltur þessu ógeði!

Vegagerðin vann að því í gær að girða fyrir svæði nálægt Þingvöllum þar sem ferðamenn hafa verið duglegir við að hlaða upp steinum og skilja eftir sig. Um tuttugu tonnum af grjóti var ekið burtu af landinu og í kjölfarið voru skilti sett upp sem banna að slíkar örvörður séu hlaðnar. Leiðsögumenn eru ósáttir við þennan sið ferðamanna og segja hann skemma náttúruna.

Þetta kemur fram í helgarblaði Fréttablaðsins í dag. Þar segir Vilborg Anna Björnsdóttir, formaður félags leiðsögumanna vörðurnar vera hrylling: „Þetta er þannig að fólk fer í ferðalag og því finnst það þurfa að skilja eitthvað eftir sig til að segja \"ég var hér\". Þetta skemmir náttúruna hvar sem það er. Ég þekki engan sem er meðmæltur þessu ógeði.\"

Fleiri leiðsögumenn taka í sama streng og Vilborg. Ari Arnórsson segist í samtali við Fréttablaðið sjálfur hafa tekið þátt í að fjarlægja grjót af svæðinu í vikunni sem er að líða. Hann líkir örvörðunum við graffíti.
Ekki eru þó allir sammála um hversu slæm áhrif vörðurnar hafa fyrir náttúru landsins. Ásmundur Ásmundsson myndhöggvari segir þær vera ákveðna tjáningu, líkt og þörf ferðamanna til að kúka í náttúrunni: „Augljóslega er þetta ekki skemmdarverk. Það er fólk sem kemur hingað og skapar einhverjar fallegar vörður fyrir Íslendinga að njóta,\" sagði Ásmundur í samtali við Fréttablaðið. Hann gagnrýnir umræðuna og veltir því upp hvort hatrið á vörðunum og málið í heild sinni sé í raun og veru dulbúið útlendingahatur.