Gengið hefur verið frá kaupum á yfir 90% hlutafjár í Íslenskum verðbréfum hf. Hluthafar í félaginu eru rúmlega 20 og fer enginn hluthafi með yfir 10% eignarhlut.
Meðal hluthafa eru Ursus Maritimus Investors sem er félag í eigu Sigurðar Arngrímssonar, Kaldbakur ehf., Lífeyrissjóður starfsmanna Akureyrarbæjar, KEA svf., Stapi lífeyrissjóður, Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga, Festa lífeyrissjóður, Lífeyrissjóður Vestmannaeyja, Kjálkanes ehf. og Salvus ehf. í eigu Sigþórs Jónssonar framkvæmdastjóra ÍV. Stefna nýrra eigenda er að styðja félagið til áframhaldandi vaxtar og er það trú þeirra að Íslensk verðbréf muni eflast á íslenskum fjármálamarkaði á næstu árum, segir í fréttatilkynningu.
Íslensk verðbréf eru sérhæft eignastýringarfyrirtæki sem var stofnað árið 1987 og hefur verið aðili að Kauphöll Íslands frá árinu 1995 og hefur starfsleyfi sem verðbréfafyrirtæki.
Félagið veitir alhliða þjónustu á sviði eignastýringar og markaðsviðskipta auk reksturs framtakssjóða og sérhæfðra fjárfestinga. Dótturfélag Íslenskra verðbréfa er ÍV sjóðir hf., og á félagið einnig 45,5% eignarhlut í Tplús ehf. Starfsmenn eru 19.