Enginn kemst yfir sitt skapadægur

 Stefán Hörður Grímsson ljóðskáld orti svona; \"Fjandanum það sem fjandans er - feigðarkallinu taka ber.\"

Þessi ljóðlína rifjast upp þegar fallkandídatar fullir af heift tala þessa daga um úrslit kosninganna og segja sínar harmasögur.

Vilhjálmur Bjarnason fyrrum alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í Kragnum er einn þessara fallkandídata en hann féll út af þingi á laugardaginn var. Hann sat á þingi frá árinu 2013.

Morgunblaðið tók Vilhjálm tali og birtir blaðið þetta fróðlega viðtal í dag.

Vilhhjálmi er augljóslega illa brugðið og er verulega ósáttur.

\"Þú þarft ekkert að spyrja. Liggur það ekki í augum uppi?\" segir Vilhjálmur þegar hann er spurður um hvenig honum líði vegna þessara hörmulegu úrslita. 

Vilhjálmur segir svo \"Ég ætla að fjalla um þetta í ævisögu minni.\"

Kjördæmaráð Sjálfstæðisflokksins ýti Vilhjálmi úr fjórða sæti framboðslistans niður í fimmta sæti og þar með fallsætið.  

Án efa með fulltingi formanns flokksins. 

Ætli Vilhjálmur hefði ekki verið næstur inn ef kjördæmaskipan væri eðlileg hér á landi sem hún sannarlega ekki er.  

\"Ég fékk kjör í fjórða sætið og fjórða sætið var haft af mér. Það þarf ekkert að ræða það meira\"

Vilhjámur lýsir þessum aðferðum kjördæmaráðs svona. 

\"Það að breyta reglum eftir á og hagræða úrslitum heitir nú kosningsvindl á sumum stöðum.  Það er ágætt að setja reglur um hvenrnig úrslit eiga að vera og ef einhver er óæskilegur í prófkjöri þá er ágætt að hann viti það fyrirfram.\"

Hann bætir við

\"Fyrst það var hægt að setja hausinn á mér undir þá hlýt ég að hafa verið óæskilegur.\"  

Líkast til er Vilhjálmur með pólitíks áform í bígerð.  Líkt og Sóley Tómasdóttir hjá VG.  Því Vilhjálmur segir Morgunblaðinu að hann sé með verkefni í pokahorninu sem hann vill ekki gefa upp að svo stöddu.

Hvort hann á þar við uppgjör við formanninn eða við flokkinn á næsta landsfundi eða flokksstofnun vill Vilhjámur ekki segja.  

[email protected]