Enginn í flugvélinni - Komust út að sjálfsdáðum

Enginn er um borð í flugvélarflakinu sem fannst á Þingvöllum í gærkvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.

Það kom í ljós eftir leit með kafbáti í Þingvallavatni seinni partinn í dag. Svæðisstjórn björgunarsveita hefur því hafist handa við að skipuleggja áframhaldandi leit í og við vatnið á morgun. Í tilkynningunni segir að fjörur vatnsins hafi verið gengnar í dag og eru síðustu hópar um það bil að klára sín verk nú í þessum töluðu orðum án þess að það hafi borið árangur. 

Þá segir að það sé ljóst að fólkið hafi komist úr vélinni af sjálfsdáðum eftir að hún lenti í vatninu en slysstaðurinn er um einum kílómetra frá landi þar sem styst er.

Leitarhópar hafa verið boðaðir til leitar á morgun á og við vatnið eftir nánara skipulagi svæðisstjórar björgunarsveita. Ljóst er að ef það ber ekki árangur verður ekkert aðhafst þar á mánudag og að líkindum lítið á þriðjudag vegna veðurs.