Enginn fylgir fiskistofustjóra norður

Eyþór Björnsson fiskistofustjóri er nú til húsa á 7. hæð rannsóknarhússins á Borgum við lóð Háskólans á Akureyri.

Flutningur Fiskistofu var ákveðinn með lögum þar sem segir að höfuðstöðvar Fiskistofu verði á Akureyri frá 1. janúar 2016. Fyrsti vinnudagur var í gær.

Morgunblaðið hefur eftir Eyþóri að níu starfsmenn verði á skrifstofum nyrðra fyrsta kastið auk veiðieftirlitsmanna. Áður voru fimm á Akureyri fyrir flutninginn.

Enginn annar starfsmaður hefur óskað eftir flutningi frá Hafnarfirði þar sem Fiskistofa hefur verið og norður.

Sigurður Ingi Jóhannsson ráðherra ákvað flutninginn en Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra sagði fyrst frá honum á fundi fyrir norðan og skóp strax miklar deilur.