Donald J. Trump forseti Bandaríkjanna hefur vaxandi efasemdir um trygglyndi Rex Tillerson utanríkisráðherra. Nú er talið næsta öruggt að Rex Tillerson verði vikið úr starfi.
Og að Michael Richard Pompeo taki við starfi utanríkisráðherra. Hann er núna aðalframkvæmdastjóri leynisþjónstunnar CIA sem er sú stofnun sem safnar upplýsingum fyrir Bandaríkin og hann á því daglega fund með forsetanum.
Stjórnmálaskýrendur vestur í Washington D C að Rex Tillerson hafi ofmetið stöðu sína og styrk innan ríkisstjórnar forsetans og vanmetið hve forsetinn metur trygglyndi og auðsveipni ráðherra sinna.
Líkast til hefur Rex Tillerson aðeins misst valdið yfir sjálfum sér því hann hafði aldrei vald yfir Donald J. Trump segja sömu stjórnmálaskýrendur.