Lilja Alfreðsdóttir, varaformaður Framsóknarsflokksins og utanríkisráðherra, mætti í laugardagsþátt Þjóðbrautar í gærmorgun. Ásamt henni voru á pólitíski vaktinni; Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður VG, og Óttarr Proppé, formaður Bjartrar framtíðar.
Lilja gat þess að Framsóknarflokkurinn er eini flokkur, af þeim sjö sem eiga sæti á Alþingi, sem hefur ekki tekið þátt í formlegum viðræðum um myndun ríkisstjórnar. Flokknum hefur aldrei verið boðið til þannig viðræðna. Lilju undrar það, og sagði jafnframt, að henni þætti tíminn frá kosningum ekki hafa verið nægilega vel nýttur, hvað stjórnarmyndun varðar.
Lilja segir Framsóknarfólk hallast helst að samvinnu með Sjálfstæðisflokki, núverandi ríkisstjórn sanni að flokkarnir eigi ágætt með að vinna saman, og því vilji hún helst að það samstarf haldi áfram.
En hvers vegna leitar aðrir ekki formlega til Framsóknarflokksins, óttast aðrir að flokkurinn sé hæfur ekki í ríkisstjórn vegna innanflokksátaka?
Lilja sagði þá hugmynd eflaust spila inn í. Sjálf sagðist hún ekki telja að flokkurinn sé það illa farinn að hann eigi ekki erindi í ríkisstjórn. Hún sagði að mikil átök fylgdu þegar skipt er um foruystu í flokki eins skömmu fyrir kosningar, einsog raun var á, hjá Framsóknarflokki. Hún sagðist þekkja vel þá báða; Sigurð Inga Jóhannsson og Sigmund Davíð Gunnlaugsson, sagðist hafa unnið með báðum, og hún efist ekkert um heilindi þeirra og hæfi til að vinna saman.
-sme