Margir undrast óvinsældir innan við eins árs gamallar ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur en aðrir benda á að einstakir ráðherrar tryggi fylgistap og óvinsældir með framgöngu sinni.
Dæmi um þetta er Svandís Svavarsdóttir sem hefur sem heilbrigðisráðherra tekist á undraskömmum tíma að fá alla upp á móti sér. Taktík hennar virðist lík því sem hún stundaði áður sem umhverfisráðherra, að tefja og þæfa mál sem eru henni ekki hugmyndafræðilega þóknanleg, svara ekki erindum og koma hlutum í bullandi ágreining.
Nánar á
http://eyjan.dv.is/eyjan/ordid/2018/09/14/enginn-arangur-allt-stopp/