Norðurkóreska utanríkisráðuneytið sendi í gær frá sér yfirlýsingu þar sem því er skýrt komið á framfæri að enginn áhugi sé fyrir samningi svipuðum þeim sem nýlega var gerður við Íran. Landið hafi hreinlega engan áhuga á viðræðum sem hefðu það að markmiði að afsala sér kjarnorkusprengjum.
„Við erum augljóslega kjarnorkuveldi og kjarnorkuveldi verða að gæta eigin hagsmuna,“ segir í yfirlýsingunni, en þar segir enn fremur að ómögulegt sé að bera aðstæður Norður-Kóreu saman við Íran: „Það er órökrétt að bera stöðu okkar saman við stöðu Írana, sökum þess að við erum ávallt fórnarlömb ögrandi hernaðaraðgerða Bandaríkjanna, líkt og risavaxinna hernaðaræfinga og kjarnorkuógnar.“
Í síðustu viku var samningur undirritaður milli stórvelda heimsins og Íran. Í samningnum segir að Íranir megi ekki þróa kjarnorkuvopn. Í staðinn verður viðskiptabanni Bandaríkjamanna, Evrópusambandsins og Sameinuðu þjóðanna á landið aflétt. Slíkt viðskiptabann er á alla verslun við Norður-Kóreu og mun líklega ekki breytast í náinni framtíð.