Enginn áhuga á akureyri og egilsstöðum

Nýskipuð nefnd á vegum ríkisstjórnarinnar sem kanna á hvernig megi koma á reglulegu millilandaflugi um flugvellina á Akureyri og Egilsstöðum ætti að geta lokið störfum sínum hratt og örugglega því ekkert flugfélag hefur sýnt áhuga á áætlanaflugi utan Keflavíkurflugvallar.


Þetta kemur fram á vefnum turisti.is.  Þar segir að frá haustinu 2011 hafi sveitarfélög og fyrirtæki í ferðaþjónustu Norðanlands staðið saman að Flugklasanum Air 66 sem hefur það að markmiði að fá reglulegt millilandaflug um Akureyrarflugvöll allt árið. Það markmið hefur ekki ennþá náðst.   Þegar samband var haft við talsmenn easyJet, Norwegian og þýsku flugfélaganna Airberlin og German Wings kom í ljós að ekkert þessara lággjaldaflugfélaga hefðu uppi áform um að hefja áætlunarflug til Akureyrar.


Það ætti því að reynast nefnd ríkisstjórnarinnar auðvelt að vinna greiningu sína innan þeirra þriggja mánaða marka sem henni er sett.