Engin teljandi verðbólga

Ole Anton Bieltvedt alþjóðlegur kaupsýslumaður spyr hvengir einhverjum detti í hug að helstu atvinnugreinar Íslands geti þolað 20% tekjuskerðingu 2015 og 20% 2016 og nú aftur 10%.

Vandinn nú eru allt of háir vextir og allt of sterk króna sem ógna atvinnuöryggi þúsunda Íslendinga - en ekki hófleg verðbólga. Hvernig - spyr Ole Anton - dettur einhverjum í hug að helstu atvinnugreinar Íslands geti þolað framangreinda tekjuskerðingu. Skylda stjórnvalda er að tryggja atvinnu fyrir alla og atvinnuöryggi fyrir landsmenn. Yfirkeyrð króna stefnir því einmitt í stórfelda hættu.

Ole Anton segir að flestir nútíma seðlabankar og hagfræðingar eru sammála um að tveggja prósenta verðbólga sé eðlileg við þau skilyrði sem ríkja á Íslandi og þar hafa Íslendingar verið og eru þar.

Verðbólgan er hér enginn vandi. Hvorki nú né í fyrirsjánalegri framtíð. Það er því af og frá að beita helsta hagstjórnartækinu - vöxtunum -  gegn henni. Hér kemur auðvitða líka til aðhald í ríkissfjármálum sem virðist vera fyrir hendir segir Ole Anton.

rtá

Nánar www.frettabladid.is