Engin sprengja reyndist á kastrup

Tafir kunna að verða á umferð um Kastrup við Kaupmannahöfn dag eftir að Flugstöð 3 var lokað og byggingin rýmd vegna ótta við hryðjuverk. Grunsamleg taska fannst og var sprengjusveit kölluð til.

Danskir fréttamiðlar hafa nú upplýst og vitna til tilkynningar frá Kastrup flugvellinum um að skoðun hafi sýnt að ekkert sé að óttast.

Eigi að síður kunni að verða raskanir og seinkanir á flugumferð sem rekja megi til viðbragðanna undir hádegi í dag.

Eftir Parísarmorðin hefur öryggi verið eflt og segja vestrænir fréttamiðlar að nokkur spenna einkenni störf landamæravörslu víða.