Engin skýrsla strax vegna banaslyssins

 

Ekki verður gefin út bráðabirgðaskýrsla vegna flugslyssins sem varð í Barkárdal í ágúst þótt það hafi staðið til. Einn maður lést í slysinu en Arngrímur Jónsson komst lífs af og þótti björgun hans ganga kraftaverki líkast.

Ríkisútvarpið greinir frá þessu. Þar segir að fljótlega eftir slysið hafi komið til greina að birta bráðabirgðaniðurstöður úr rannsókn slyssins um það bil mánuði eftir að slysið varð en nú hafi Rannsóknarnefnd samgönguslysa ákveðið að birta ekki bráðabirgðaniðurstöður. Hann vill ekki segja hvers vegna sú ákvörðun hafi verið tekin, að öðru leyti en að nefndin telji það þjóna rannsóknarhagsmunum að birta ekki bráðabirgðaniðurstöður að svo stöddu.

Samkvæmt frétt Rúv er gert ráð fyrir að rannsókn slyssins geti tekið allt að þrjú ár.

Þá hefur enn dregist að birta skýrslu um slysið sem varð þegar sjúkraflutningavél Mýflugs hrapaði við akstursíþróttasvæði vestan Akureyrar um verslunarmannahelgina fyrir rúmum tveimur árum.