Engin sérmeðferð

Í tilefni af umfjöllun fjölmiðla um nýuppkveðin úrskurð úrskurðarnefndar um upplýsingamál vill dómsmálaráðuneytið taka fram að samkvæmt áralangri stjóirnsýsluvenju hefur uppreist æru verið veitt með vísan til 3. mgr. 85. gr. almennra hegningarlaga sem heimilar þegar sérstaklega stendur á uppreist æru þegar 2 ár eru liðin frá afplánun refsingar.

Í máli því sem úrskurður nefndarinnar tók til var ekki um að ræða sérmeðferð á máli viðkomandi umsækjanda. Þvert á móti fékk mál hans sömu meðferð og önnur sambærileg mál undanfarna áratugi. Á árunum 1995 - 2017 fengu 32 uppreist æru. Af þeim eru 14 sem fengu uppreist æru innan fimm ára eða 44%.

Hinir þ.e. 18 einstaklingar sóttu um uppreist æru eftir að fimm ár höfðu liðuð frá afplánun refsingar. Engum var hafnað á grundvelli þess að viðkomandi uppfyllti ekki skilyrði um fimm ár.

Nánar er fjallað um þetta á vef dómsmálaráðuneytisins.

 

[email protected]