Margrét Kristmannsdóttir, framkvæmdastjóri Pfaff og Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, eru á einu máli um að sátt þurfi að skapast um íslenskan landbúnað. Í þættinum Neytendavaktin sem sýndur var á Hringbraut í kvöld sögðu þau að hvítt kjöt ætti engan veginn að flokka undir hefðbundinn íslenskan landbúnað. Það hefði ekki sömu menningarlegu gildi né sérstöðu og til dæmis íslenskt lambakjöt, auk þess sem kjúklingabúin á Íslandi væru fá og starfsemi þeirra í engu samræmi við annan eldri landbúnað. Ólafur Stephensen segir nýútkomna skýrslu Samkeppniseftirlitsins styðja við þetta og hvetur til þess að hvítt kjöt fari í samkeppni við innfluttar vörur, rétt eins og íslenskt grænmeti hafi gert.
Hægt er að nálgast klippur úr þættinum hér neðar á forsíðunni á hringbraut.is og þáttinn, sem unninn er í samvinnu við spyr.is, í heild sinni undir sjónvarpsflipanum.