Þrjár vikur eru liðnar frá síðasta hugsanlega mislingasmiti og telur sóttvarnalæknir líklegt að það hafi tekist að stöðva faraldinn sem hefur gengið yfir hér á landi síðan um miðjan febrúar. Fjórir einstaklingar hafa greinst með staðfesta mislinga og þrír með svokallaða væga mislinga (e. modified measles). Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá sóttvarnalækni.
Um þá sem fengu væga mislinga segir að það séu bólusettir einstaklingar sem hafa komist í tæri við smitaðan einstakling. Þessir einstaklingar fá vanalega væg einkenni og smita ekki aðra. Þá hafa nokkrir einstaklingar greinst með væg mislingalík einkenni í kjölfar bólusetninga en slík einkenni eru ekki alvarleg og þeir einstaklingar smita ekki aðra.
Fram kemur að þær aðgerðir sem ráðist var í til að stöðva útbreiðslu mislinga hér á landi hafi tekist mjög vel þökk sé starfsmönnum heilbrigðisstofnana og almenningi. Frá því að fyrsta tilfellið greindist hér á landi um miðjan febrúar hafa um það bil 6.749 einstaklingar verið bólusettir, 3.415 á aldrinum 0-17 ára, þar af 2.718 börn undir 18 mánaða aldri, og 2.572 á aldrinum 18-49 ára.
Aftur bólusett samkvæmt fyrri áætlun
Í tilkynningunni segir að lokum að samstaða sé á meðal sóttvarnalæknis og umdæmis- og svæðislækna sóttvarna um land allt að hverfa frá núverandi fyrirkomulagi á bólusetningum og fara að bólusetja aftur samkvæmt fyrri áætlun, við 18 mánaða og 12 ára aldur.
Ekki er talin ástæða nú til að bólusetja börn yngri en 18 mánaða nema við sérstök tilefni, eins og þegar ferðast skal til landa þar sem tíðni mislinga er há. Óbólusettir einstaklingar á aldrinum 18 mánaða til 49 ára eru áfram hvattir til að láta bólusetja sig.