Engin nóbelsverðlaun í bókmenntum

Sænska akademían tilkynnti í morgun að Nóbelsverðlaunin í bókmenntum yrðu ekki veitt í ár. Þetta er í fyrsta skipti í 75 ár sem verðlaunin verða ekki veitt.
 
Að því er fram kemur í frétt RÚV um málið í morgun styður Nóbels-sjóðurinn þessa ákvörðun Akademíunnar, en óhætt er að segja að hún hafi orðið fyrir miklum skakkaföllum að undanförnu og varð raunar fyrir enn einu áfallinu í síðustu viku þegar rithöfundurinn Sara Stridsberg tilkynnti að hún myndi ekki taka þátt í starfi akademíunnar.
 

Stridsberg var þá sjötti meðlimur akademíunnar sem sagði sig frá starfi sínu á síðustu fjórum vikum. Stridsberg, sem er þekktur feminísti, var eindregin stuðningsmaður Söru Danius, sem var ritari akademíunnar. Danius dró sig í hlé eftir að meirihluti þeirra sem eftir eru lýstu vantrausti á hana.

Vandræðin í akademíunni eru vegna viðbragða eða viðbragðsleysis við ásökunum á hendur Jean-Claude Arnault, eiginmanni Katarinu Frostenson, sem sat í akademíunni, en sagði sig frá starfi hennar. Í kjölfar metoo-byltingarinnar sökuðu 18 konur Arnault um kynferðislegt ofbeldi og áreitni. Arnault er einnig sakaður um að hafa ítrekað lekið upplýsingum um handhafa Nóbelsverðlaunanna áður en nöfn þeirra voru formlega tilkynnt. Hann neitar öllum ásökunum.  

Andreas Olsson, starfandi ritari sænsku akademíunnar, sagði á blaðamannafundi í morgun að þessi ákvörðun hafi verið rædd ítarlega innan nefndarinnar og menn hafi komist að þeirri niðurstöðu að trúverðugleiki Nóbels-verðlaunanna í bókmenntum væri í húfi.  Verðlaunin yrðu veitt á næsta ári og verið væri að skoða þann möguleika að hafa verðlaunahafana þá tvo, segir í frétt RÚV í morgun.