Ingibjörg fékk 18 milljónir af skattfé frá seðlabankanum - sneri aldrei aftur að námi loknu

Ingibjörg Guðbjartsdóttir, þáverandi framkvæmdastjóri gjaldeyriseftirlits Seðlabanka Íslands, fékk um átján milljónir í námsstyrk, laun og endurgreiddan kostnað frá bankanum meðan hún var í námsleyfi og sótti MPA-nám í Bandaríkjunum. Viljinn.is greinir frá þessu. Þar kemur einnig fram að hún hafi ekki snúið aftur til starfa hjá bankanum eftir að hafa lokið námi.

Viljinn kveðst hafa öruggar heimildir fyrir þessu. Í morgun var greint frá því í Fréttablaðinu að lögfræðingar bankans hafa reynt að koma í veg fyrir að Fréttablaðið fái upplýsingar um málið, þrátt fyrir að úrskurðarnefnd um upplýsingamál hafi úrskurðað svo um að miðillinn ætti rétt á að fá þessar upplýsingar. Lögfræðingar bankans hafa því höfðað mál gegn blaðamanni Fréttablaðsins vilja þannig freista þess að fá niðurstöðunni hnekkt. Í Fréttablaðinu segir:

 „Í nóvember á síðasta ári óskaði blaðamaður eftir upplýsingum frá Seðlabankanum um samning sem Már Guðmundsson, fráfarandi seðlabankastjóri, gerði við Ingibjörgu Guðbjartsdóttur, þáverandi framkvæmdastjóra gjaldeyriseftirlits bankans, um styrk og laun í námsleyfi meðan hún sótti MPA-nám í Bandaríkjunum. Ingibjörg kom ekki aftur til starfa fyrir bankann að námi loknu en samningurinn var hugsaður sem starfslokasamningur. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er verðmæti samningsins hátt á annan tug milljóna og mun hærra en annarra námsstyrkja sem starfsfólki bankans standa til boða.“

Þá segir á Viljanum að engin dæmi séum um að einstaklingur hafi fengið jafn stóran námsstyrk hér á landi, sem greiddur er með skattfé, án þess að hann hafi verið auglýstur sérstaklega og aðrir fengið tækifæri til að sækja um. Þá þekkja menn heldur ekki dæmi þess að opinber aðili á borð við Seðlabankann leggi sig jafn mikið fram um að leyna upplýsingunum um þennan gjörning og raun ber vitni.