Björgunarsveitin Ingunn á Laugarvatni hafa dregið saman seglin og lítið mun hafa fyrir flugeldasölu hjá sveitinni þessi áramótin. Í staðinn munu meðlimir björgunarsveitarinnar ganga í hús og selja rótarskot í samstarfi við Skógræktarfélag Íslands. Það er Sunnlenska sem greinir frá þessu.
Þá er fólki boðið að styrkja Ingunni með framlagi í flugeldasýninguna sem björgunarsveitin stendur fyrir við áramótabrennu á Laugarvatni á gamlárskvöld.
Jafnframt verður fólki boðið upp á að styrkja Ingunni með framlagi í flugeldasýninguna sem verður á sínum stað við áramótabrennuna á gamlárskvöld. Í tilkynningu frá Ingunni segir:
„Ástæður þessara breytinga eru nokkrar. Salan hefur tekið miklum breytingum síðustu ár og kröfur verið hertar varðandi sölustaði ásamt því að samkeppnin veldur því okkar litla sala var ekki að standa undir sér.“