Engin fjölgun sjálfsvíga hér á landi

Sjálfsvíg karlmanna í Bretlandi hafa ekki verið fleiri frá árinu 2001 að því er fram kemur í nýlegri frétt BBC. Þar er jafnframt greint frá því að 78% sjálfsvígstilfella í landinu séu sjálfsvíg karlmanna, til móts við 22% sjálfsvíga kvenna. Í svari Landlæknisembættisins við nýlegri fyrirspurn frá lesanda upplýsingasíðunnar spyr.is kemur fram að þessi þróun á Bretlandseyjum virðist ekki eiga við um sama tímabil hér á landi. Frá árinu 2005-2012 hafi sjálfsvígtilfelli verið 31-37 á ári. Karlmenn séu þar í meirihluta, rétt eins og í Bretlandi. Nefna megi sem dæmi að árið 2012 hafi sjálfsvíg verið 35 talsins, þar af 24 karlmenn. Enn sé verið að vinna gögn fyrir árið 2013, en í svari Landlæknisembættisins komi fram að þau gögn gefi ekki til kynna neinar breytingar.


Flest sjálfsvíg hér á landi, verða meðal einstaklinga á aldrinum 30-59 ára. Í frétt BBC segir að þau séu hvað tíðust í aldurshópnum 45-59 ára í Bretlandi.