Engin endurnýjun sýnileg

Gangi spár eftir, sérlega Þjóðarpúls Gallup, mun Samfylkingin fá fimm þingmenn kjörna í kosningunum í lok október. Trúlegast er að það verði Árni Páll Árnason, Helgi Hjörvar, Oddný G. Harðardóttir, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir og Össur Skarphéðinsson. Öll margreynd og hafa saman verið með í hinu mikla falli flokksins. Helgi einn þeirra hefur ekki verið ráðherra.

Meðalaldur þeirra fimm er 54 ár og meðalþingaldurinn er þrettán ár. Ljóst er að þau sem kusu til uppstillingar á listum flokksins telja ekki fullreynt með fimmenningana og ákvaðu að treysta þeim til að ná aftur því mikla fylgi sem tapast hefur.

Össur er elstur, 63 ára og hefur setið á þingi í aldarfjórðung.