Enginn bauð í uppsetningu á að minnsta kosti 210 strætóskýlum í Reykjavík, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag. Í útboðinu var einnig boðin út uppsetning allt að 50 auglýsingastanda auk þess sem heimilt var að setja upp allt að 400 biðskýli í borginni.
Þar af áttu um 50 biðskýli að vera með rafrænu upplýsingaskilti með rauntímaupplýsingum um biðtíma eftir næstu vögnum.
Morgunblaðið ræðir við Einar Hermannsson, framkvæmdastjóra AFA JCDeacaux, sem rekið hefur biðskýli borgarinnar undanfarin ár. Þar segir hann að fyrirtækið hafi ekki boðið í verkefnið vegna þess að það hafi verið of dýrt að setja upp búnað sem borgin hafi farið fram á. Verkefnið sé töluvert dýrara en borgin reiknaði með.
Einar segir að fyrirtækið áætli að skemmdir, viðhald og auglýsingapláss sem Reykjavíkurborg hafi viljað fá frítt hefði kostað fyrirtækið 450 til 480 milljónir á tímabilinu. Ef nýr verktaki hefði tekið þetta að sér að þá mætti áætla að kostnaðurinn þess hefði verið tólf hundruð milljónir.