Á meðan helsti vandi Íslendinga í kvöld snýst um hvort vel viðri til að skjóta upp flugeldum og betur á einum stað en öðrum, hefur flugeldasýningu og hátíðarhöldum í tilefni áramótanna verið aflýst í Brussel, höfuðborg Belgíu, vegna gruns um fyrirhugaða hryðjuverkaárás.
Tveir hafa verið handteknir vegna gruns um skipulagningu voðaverks.
Um áramótin í fyrra fögnuðu hundrað þúsund manns áramótunum saman í Brussel.
Forsætisráðherra Belgíu, Charles Michel, segir að ekki sé hægt að tryggja öryggi svo stórs hóps í ljósi upplýsinga og ákvörðunin sé byggð á því.