Engilbert Arnar stofnaði Facebook-hópinn Costco-gleði þann 7. nóvember 2017. Hefur hann haft gleðina að leiðarljósi og var síðan stofnuð til að auðvelda fólki að finna spennandi vörur og góð tilboð. Nú greinir DV frá því að Engilbert hafi verið settur í bann í eigin hópi en vinur Engilberts deilir þessum fregnum með þeim 36 þúsund manns sem eru meðlimir.
Costco-gleði hefur verið mikil ástríða og sagði Engilbert á sínum tíma við Fréttablaðið:
„Þetta er búið að vera ótrúlega skemmtilegt og gefandi og gaman að hjálpa öðrum og gleðja fólk.“
Annar stjórandi síðunnar byrjar á því að greina hópnum frá því að Engilbert hafi verið bannaður og birtir svo bréf frá Engilbert:
„Jæja þá er Facebook allt í einu farið að senda mér tilkynningar sem hljóma svona: „Your post goes against our Community Standards so only you can see it.“
Og ekki nóg með það heldur eru þeir einnig farnir að taka út aðra pósta sem ég hef verið að setja inn nýlega fyrir ykkur. Þannig þið getið ekki lengur séð þá.
Ég vildi bara láta ykkur vita. Ég botna ekkert í þessu. Kannski er þetta vegna þess að myndirnar mínar eru farnar að telja í þúsundum sem ég hef tekið til þess að hjálpa og gleðja sem flesta.
Ég vona bara að þessi póstur sleppi í gegn því ég vildi bara segja takk.
COSTCO-Gleði er síðan ykkar: „Þakka þér kærlega fyrir að vilja hjálpa öðrum og gleðja aðra. Þannig að þakklætið fer klárlega til ykkar. Farið vel með ykkur.“
Eru meðlimir slegnir og í áfalli yfir þessum fregnum.
Í byrjun árs velti Engilbert fyrir sér að hætta sem stjórnandi í hópnum. Sagði hann hlutverkið bæði taka tíma og valda honum kvíða. Þá sagði hann í samtali við Fréttablaðið:
„Ég veit að fólk á eftir að halda áfram þarna að hjálpa hvort öðru og að hópurinn haldi áfram að vaxa og dafna. Ég lagið hjarta mitt og sál í þetta. Það verður bara að segjast eins og er og mér finnst best við þetta að fólk geti hlegið saman og sameinast í gleðinni.“
Blessunarlega fyrir aðdáendur síðunnar skipti Engilbert um skoðun. Þá má geta þess að líklegt sé að Engilbert sé þó aðeins í banni í nokkra daga og geti eftir það haldið áfram að deila jákvæðum skilaboðum í Costco-gleði hópnum aðdáendum til ómældrar gleði.