Bryggjan kíkir í kvöld um borð í Engey - morgunin sem hið mikla fley kom til landsins frá Tyrklandi og hitt m.a. fyrir skipstjórann Friðleif Einarsson.
Ísfisktogarinn Engey RE í eigu HB Granda kom til heimahafnar í Reykjavík þann 25.janúar. Skipið sigldi inn snemma morguns þegar „útsendari“ Bryggjunnar með tökumanninum Friðþjófi Helgasyni mættu á Skarfabakkann.
Siglingin frá Tyrklandi þar sem skipið er smíðað tók rúmlega tvær vikur. Lagðar voru að baki á milli 3.800 og 3.900 sjómílur.
,,Við förum beint í togprófanir í Hvalfirði og þaðan verður haldið á Akranes þar sem vinnslubúnaðurinn verður settur niður“, segir Friðleifur Einarsson skipstjóri.
Bryggjan tók fleiri í áhöfninni tali við komuna.