Kosning til nýrrar forystu Framsóknarflokksins dregst á langinn. Hefst seinna en áætlað var og mikill fjöldi eru á flokksþinginu í Háskólabíó sem langar biðraðir myndast að kjörklefunum, þegar klukkan var að ganga eitt eftir hádegi. Hringbraut hefur í spjalli við flokksmenn á þinginu orðið þess áskynja að fæstir virðist átta sig á stöðunnu. Einn viðmælandi sagði að hugmyndir um að kosið væru um pör formanns og varaformanns, Sigmundar og Lilju eða Sigurðar Inga og Eyglóar væri ofureinföldum. Engar slíkar tvennur væru í boði.
“Menn gera fyrst og fremst það sem er best fyrir þá sjálfa”, sagði miðaldra framsóknarmaður áðan og meinti að allir væru í raun að hugsa um eigin hag og til í að sitja í forystu með hverjum sem er. Hvað sem því líður að Eygló segist eingöngu vilja varaformannssætið með nýjum formanni – án Sigmundar.
Formaðurinn verður að hafa minnst 50 prósent fylgi til að ná kjöri, annars þarf að kjósa aftur. Þeir sem Hringbraut ræddi við áðan voru afar fair sem töldu að það myndi gerast. Baráttan væri það hörð að langflestir tækju afstöðu en ógildir seðlar eða auðir ekki margir.