Lægðin víðáttummikla sem ráðið hefur veðri undanfarna daga grynnist nú ört og ekki að sjá að neitt stórt komi í stað hennar, að því er segir á veðurbloggi þess glögga veðurfræðings, Trausta Jónssonar í dag.
\"En nokkrar smærri lægðir fara þó hjá og vindátt verður sjálfsagt mjög breytileg,\" bendir hann á og bætir við: \"Þótt næturfrost séu ætíð uppi á borðinu um leið og léttir til á þessum árstíma virðist hiti samt í aðalatriðum eiga að haldast nærri meðallagi næstu daga.\"
Hann horfir til norðurs: \"Mikil hlýindi eru í norðurhöfum - eins og oftast að undanförnu. September var sá þriðji hlýjasti á Jan Mayen frá upphafi mælinga þar 1921. Spáin gerir hins vegar ráð fyrir kulda í Evrópu - mjög kalt hefur verið í Rússlandi undanfarna daga og á sá kuldi að leita vestur á bóginn sunnan við mikla hæð yfir Skandinavíu. Sömuleiðis er kalt í norðanátt vestast á þessu korti.\"
Og Trausti er eldri en tvævetur: \"En hlutirnir eru svosem fljótir að breytast - og veðurspár enn hraðar en veðrið sjálft,\" eins og hann bendir kankvís á.