Fljótlega eftir gjaldþrot WOW air voru skipaðir tveir skiptastjórar yfir stóru þrotabúi flugfélagsins, lögmennirnir Sveinn Andri Sveinsson og Þorsteinn Einarsson. Skipunin hefur verið gagnrýnd og þá ekki síst af kvenkyns lögmönnum, sem mörgum hverjum þykir það dæmigert að miðaldra karlmenn fái ætíð eftirsóknarverð störf sem þessi.
Kolbrún Garðarsdóttir, formaður Félags kvenna í lögmennsku, var gestur Lindu Blöndal í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í gærkvöld, þar sem hún ræddi þessa umdeildu skipan og slíkar skipanir almennt.
„Þetta eru verkefni sem flest allir lögmenn taka að sér og þau skila tekjum, þannig að auðvitað er verið að úthluta þarna gæðum. Þau eru mismikil,“ segir Kolbrún og vísar til mismunandi stærðar þrotabúa. Meiri vinna og þar af leiðandi meiri tekjur eru tryggðar lögmönnum þegar um stærri bú með meiri eignum er að ræða.
Um ferlið við skipan skiptastjóra segir Kolbrún. „Það er þannig að þegar dómari við viðkomandi dómstól tekur við beiðninni um gjaldþrotaskipti, annað hvort frá þrotamanni sjálfum eða kröfuhöfum, þá í rauninni kannar hann grundvöllinn, hvort að beiðnin sé rétt úr garði gerð, hvort að skilyrðin séu uppfyllt og skipar síðan skiptastjóra. Hvernig hann metur það, hver eigi að fá viðkomandi bú, vitum við ekki. Það eru engar reglur til um það.“
„Í ljósi þess sem er að koma upp núna mætti ferlið vera svolítið gegnsærra og við vissum betur, ekki bara við lögmennirnir heldur almenningur, hvernig þessum málum er háttað. Hvaða krítería liggur að baki fyrir utan það að vera hæfur samkvæmt gjaldþrotaskiptalögunum. Því öll erum við það nú í raun og veru sem lögmenn,“ bætir Kolbrún við.
Viðtalið við Kolbrúnu er að finna í heild sinni hér: