Engar líkur á því að fólkið hafi synt í land

Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn á Suðurlandi, segir flak vélarinnar heillegt á botni vatnsins. Í samtali við Vísi í dag sagði hann einnig að engar líkur væru á því að fólkið hefði komist lifandi í land.

Hann segir þar að stysta leið til lands sé kílómeter, vatnið sé núll til ein gráða og aðstæðurnar til að komast út úr þessu séu því ómögulegar. Ofkælingin komi strax.