Engar kvartanir vegna jóns baldvins

Embættismenn í utanríkisráðuneytinu á íslandi finna engin gögn þess efnis að kvartað hafi verið yfir framgö0ngu Jóns Baldvins Hannibalssonar fyrrverandi utanríksiráðherra í Bandaríkjunum, eins og þráfaldlega er haldið fram í nýrri bók Björn Jóns Bragasonar um bankahrunið og aðdraganda þess, en þar er því haldið fram að ósiðleg athæfi Jóns Baldvin ytra hafi skaðað hagsmuni Íslands í hruninu.


Í tilkynningu ráðuneytisins segir: "Búið er að leita í Málaskrá og skjalasafni að kvörtunum vegna sendiherra Íslands í Washington. Engar nótur, símbréf, tölvupóstar eða frásagnir af samtölum eða fundum fundust þegar leitað var með textaleit í Málaskrá. Engin erindi fundust heldur við leit á málalykli fyrir kvartanir á hendur íslenskum fulltrúum eða um sendiherrann í Washington á þessum tíma."


Síðar segir: "Þar sem spurningin virðist stafa af frásögn í bókinn "Bylting: og hvað  svo" eftir Björn Jón Bragason, var bókin útveguð. Á bls. 23 og 24 er málsgrein þar sem m.a. er sagt að "...utanríkisráðuneytinu hafi ítrekað borist kvartanir.." vegna sendiherra. Tilvitnun við enda málsgreinarinnar er "Ónafngreindir heimildamenn í utanríkisþjónustunni". Engar vísbendingar eru þar um af hvaða tilefni kann að hafa verið kvartað, eða á hvaða tíma. Engar upplýsingar um kvartanir vegna sendiherra Íslands í Washington 1998-2002 fundust í Málaskrá eða skjalasafni."