Engar hvalveiðar verða í sumar - norskt hrefnukjöt verður flutt inn

Enginn hvalur verður veiddur við strendur Íslands þetta sumarið. Segjast Hrefnuveiðamenn ætla frekar að einbeita sér að sæbjúgum. Í samtali við RÚV segir Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals, að markaðir í Japan vera of erfiða og illa gengi að markaðssetja íslenskt hvalkjöt þar.  
 
„Það hentar okkur ekki eins og staðan er akkúrat núna, svo þessi ákvörðun var tekin að sleppa þessu,” segir Gunnar Bergmann Jónsson, hrefnuveiðimaður og framkvæmdastjóri IP útgerðar. Gunnar mun flytja inn norskt hrefnukjöt til að svara innlendri eftirspurn þetta sumarið.
 
Árið 2003 hófust hvalveiðar í vísindaskyni á sumrin en árið 2006 hófust svo hvalveiðar í atvinnuskyni eftir langt hlé á veiðum. Hafrannsóknarstofnun hefur gefið það út að veiða megi að hámarki 217 hrefnur og 209 langreyðar til ársins 2025. Hafrannsóknarstofnun hefur einnig sagt að engar vísindaveiðar verði í sumar og er þetta því fyrsta sumarið í 17 ár sem engar hvalveiðar verða yfir sumartímann.