Enga brunaútsölu takk, á íslandsbanka!

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna segir nauðsynlegt að stjórnvöld fari sér hægt við sölu á Íslandsbanka, fari svo að hann komist í eigu ríkisins. Þar hræði sporin sannarlega.

Þetta kom fram á Þjóðbraut Páls Magnússonar í gærkvöld þar sem Katrín minnti á lærdóm síðustu daga í þessum efnum: Símasalan til útvalinna væri enn ein viðvörun á sviði viðskiptalífsins; þar hefðu almennar leikreglur ekki verið virtar, þar hefðu allir ekki setið við sama borð, þar hefði menn enn verið að úthluta gæðum til útvalinna aðila.

\"Fái ríkið Íslandsbanka í sinn hlut er vert að flýta sér mjög hægt við að koma honum aftur í hendur einkaðila,\" sagði hún í þættinum og galt varhug við brunaútsölu í þeim efnum. Líklega væri réttast að klára fyrst opinbera rannsókn á síðustu einkavæðingu viðskiptabankanna sem samþykkt hefði verið á Alþingi en væri ekki enn komin í framkvæmd. Lærdómurinn af þeirri klíkuvæðingu gæti nýst nú við nýjar aðstæður.

Hún taldi í þættinum réttast að Landsbankinn verði áfram í eigu ríkisins, það væri þekkt og hefði gefist vel á Norðurlöndunum og Þýskalandi að hafa einn sterkan banka í samfélagslegum rekstri. Lítill vilji væri til þess innan Alþingis að selja hlut ríkisins í Landsbankanum nema ef vera kynni innan Sjálfstæðisflokksins, jafnvel Framsókn væri andvíg sölu á þeim 30% hlut sem Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra vildi selja á markaði.

Þá ræddi hún í þessu samhengi nauðsyn þess að aðskilja rekstur viðskiptabanka og fjárfestingabanka, en tillaga VG þess efnis væri aldrei jafn mikilvæg og einmitt núna í umrótinu í bankageiranum.

Þjóðbraut má sjá hér á hringbraut.is.