Endurvinnsla á stöðvum Sorpu og Góði hirðirinn eru núorðið fastir punktar í lífi almennings sem hugar að endurvinnslu. Pétur hittir Rögnu Ingibjörgu Halldórsdóttur framkvæmdastjóra í umhverfis- og fræðsludeild Sorpu í einni stærri endurvinnslustöðvunum. Hún segir m.a. frá því að allt plast sé núna sent til Skandinavíu en um áramótin lokaði Kínamarkaður fyrir plasti. Ragna segir einnig að efnahagslegt árferði hafi áhrif á hegðun fólks varðandi endurvinnslu og endurnýtingu.
Þátturinn Súrefni fjallar um umhverfismál og er nýr þáttur á hverju mánudagskvöldi Kl.20.30
Umsjón hafa Linda Blöndal og Pétur Einarsson.