Endurupptaka mála í óbreyttum farvegi

Davíð Þór Björgvinsson, prófessor og settur saksóknari í Guðmundar- og Geirfinnsmálum segir nýlegan dóm Hæstaréttar þar sem vikið var til hliðar ákvæði í lögum um endurupptökunefnd hafi ekki áhrif á málið sjálft.

Einu áhrifin á framgang málsins verði þau að Hæstiréttur en ekki endurupptökunefnd hafi síðasta orðið um hvort málið verði tekið upp að nýju. Vilji löggjafans hafi hins vegar staðið til að færa þessa ákvörðun í hendur nefndarinnar eins og ráða megi af greinargerð með frumvarpinu á sínum tíma.

Þetta kemur fram í samtali Davíðs Þórs við Ólafana en þáttur þeirra verður sýndur í kvöld kl. 21.30 og endursýndur kl. 23.30.

Þættir Ólafanna eru vikulega á dagskrá Hringbrautar og fjalla um þjóðmál eins og þeim einum er lagið.