Endurtalning í hafnarfirði

Endurtalið verður í Hafnarfirði að beiðni Samfylkingarinnar og Vinstri grænna sem báðir töpuðu einum fulltrúa með litlum mun.

Tíu atkvæði vantaði upp á að Samfylkingin næði inn fulltrúa til viðbótar og fimm atkvæði að VG næði inn manni.

Sjálfstæðisflokkurinn fékk flesta kjörna í Hafnarfirði en nær þó ekki meirihluta. Flokkurinn fékk 33,7 prósent atkvæða og heldur fimm bæjarfulltrúum frá því á síðasta kjörtímabili. Samfylkingin fékk rúmlega 20 prósent atkvæða og tvo kjörna en missir einn fulltrúa

Framsóknarflokkurinn, Viðreisn, Miðflokkurinn og Bæjarlistinn fá allir einn mann og koma nýjir inn í bæjarstjórn. Án Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn þyrftu allir hinir flokkarnir að mynda eins manns meirihluta.

Að óbreyttu náðu þessir kjöri:

Sjálfstæðisflokkur: Rósa Guðbjartsdóttir, Kristinn Andersen, Ólafur Ingi Tómasson og Helga Ingólfsdóttir    

Samfylking: Adda María Jóhannsdóttir og Friðþjófur Helgi Karlsson    

Viðreisn: Jón Ingi Hákonarson    

Framsóknarflokkur: Ágúst Bjarni Garðarsson    

Bæjarlistinn: Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir