Endurreisn frakklands

Ný skoðanakönnun spáir nýjum stjórnmálaflokki forseta Frakklands afgerandi sigri. Fyrirtækin sem framkvæma þessa könnun - IPSOS og Sopra Steria - eru frönsk og þau spá því að nýr flokkur Emmanuel Macron forseta Frakklands vinni yfirburða sigur í frönsku þingkosningunum. Þessi flokkur nefnist nú á frönsku \"La République En Marche!\" (LREM) sem má á íslensku líkast til nefna \"Lýðveldið áfram gakk!\" eða eitthvað þessu líkt.

Reynist þessi spá nærri sanni verður sigur flokkks Emannuel Macron viðlíkur kosningasigri Charels De Gaulle forseta Frakklands árið 1968. Spáin segir að flokkur forsetans  LREM fá næstum því 30% greiddra atkvæða í fyrri umferð næsta sunnudag og mun svo sópa til sín 385 til 415 þingsætum í seinni umferð sem verður hinn 18.júní nk. Flokkurinn LREM þarf að fá 289 þingsæti til að hafa tryggan þingmeirihluta.

rtá

Nánar www.openeurope.org.uk www.soprasteria.com www.reuters.com