Yfir 50 þúsund Íslendingar höfðu skráð sig á undirskriftalista Endurreisnar í morgun - og hafa því rösklega 15% landsmanna tekið undir áskorun Kára Stefánssonar um átak í heilbrigðismálum á tveimur sólarhringum.
Kári hefur haft á orði að listinn snúist ekki um tölur heldur kærleika, en hann vill með átakinu auka fjármagn úr ríkissjóði til heilbrigðiskerfisins og leggja þar með aukna áherslu á þennan mikilvæga málaflokk.
Nú er 8,7% af landsframleiðslu þjóðarinnar varið til heilbrigðismála, en Kári vill hækka það hlutfall upp í 11% svo sem tíðkast hjá nágrannaþjóðum Íslendinga og má þar nefna Svíþjóð sem dæmi.
Þá hefur og verið bent á að fjárframlög til heilbrigðismála hér á landi eru ekki í takti við öldrun þjóðarinnar, en ef svo væri ættu framlögin þegar af þeirri ástæðu að aukast árlega um 2%.
Hægt er að skrá sig á lista Kára á endurreisn.is.