Endurómur frá frægasta hurðarskellinum

Dúkkuheimilið – annar hluti var frumsýnt þann 21.sept síðastliðinn í Borgarleikhúsinu.

Verkið er eftir bandaríkjamanninn Lucas Hnath og hann gerðist svo djarfur að semja í fyrra verk sem framhaldið af hinu byltingakennda verki Ibsens frá 1879 – Dúkkuheimilinu.

Í þessu verki kemur Nóra Helmer aftur heim eftir 15 ára fjarveru en í lok upprunalega verksins þá yfirgefur Nóra heimilið, eiginmann og börn – skellir hurðinni og hefur nýtt líf. Djarfara varð það varla seint á nítjándu öldunni.

140 árum síðar kemur Nóra aftur heim – það er, í nýju verki sem svarar vangaveltum margra um hvað hafi orðið um hana og oftar en ekki var talið að hún hefði farið í hundana. Annað er þó uppi á tengingnum í þessu nýja verki.

Unnur Ösp Stefándsdóttir leikur Nóru, líkt og í fyrra verkinu sem borgarleikhúsið sýndi í fyrra og Hilmir Snær Guðnason er aftur Þorvaldur Helmer.

Við sjáum í kvöld stutt brot úr verkinu.

Unnur Ösp Stefánsdóttir, leikkona og Una Þorleifsdóttir, leikstjóri setjast svo hjá Lindu Blöndal í þættinum 21 í kvöld.