Endurgreiðir ekki ólögmætan skatt

Atvinnuvegaráðuneytið hefur hafnað kröfu þriggja innflutningsfyrirtækja um endurgreiðslu útboðsgjalds vegna tollkvóta á búvörum.


Héraðsdómur Reykjavíkur felldi þann dóm 17. mars síðastliðinn að útboðsgjaldið væri ólögmætur skattur sem bryti í bága við stjórnarskrá. Í framhaldinu sendi Félag atvinnurekenda ráðuneytinu erindi 23. mars og krafðist þess að innflutningsfyrirtækjum yrði endurgreitt útboðsgjald sem greitt hefði verið fyrirfram vegna innflutningsheimilda sem enn hefðu ekki verið nýttar. Erindið var ítrekað 31. mars.


Hér er um að ræða mikla hagsmuni neytenda, þar sem innflutningsfyrirtæki greiddu til dæmis um 300 milljónir króna í útboðsgjald vegna innflutningskvóta frá ríkjum ESB fyrir árið 2015. Innflutningsheimildirnar hafa eingöngu verið nýttar að hluta. Sé útboðsgjaldið ekki innheimt geta innfluttar búvörur, til dæmis kjötvörur og ostar, lækkað í verði um tugi prósenta.