Endurgerði kagga með aðstoð google

Jói Bachmann og félagar í bíladellu þættinum Kíkt í skúrinn heimsóttu í gærkvöld ungan mann sem ákvað fyrir nokkrum árum að gera upp fornbíl áður en hann næði 25 ára aldri.


Hann fann Dodge Dart 1969 austur í sveitum og kom honum í skúrinn og ári seinna og fjórum mánuðum betur var bíllinn tilbúinn, algerlega uppgerður gljáfægðra stuðaranna á milli. Endurgerðina vann hann alveg uppá eigin spýtur og óskaði ekki eftir hjálp frá neinum. Hann googlaði það sem hann þurfti - og leitaði sér upplýsinga hvar sem hann gat, en hann þurfti að endursmíða mikið í bílnum, s.s. alla grindina, toppinn og gólfin sem hann gerði sjálfur. Á endanum tók hann svo til og sprautaði rennireiðina alla sjálfur.


Í þætti gærkvöldsins var einnig farið á 40 ára afmælissýningu Kvartmíluklúbbsins sem var í Egilshöll um helgina, en yfir 220 glæsibílar voru á staðnum, svo flottir raunar að augun voru giska framstæð á gestum öllum.

Þá fengu áhorfendur þáttarins líka að fræðast um pústviðgerðir hjá Betra Pústi þar sem teknar voru fyrir tvennskonar viðgerðir og hvað best er fyrir neytandann að gera í hverju tilfelli.


Kíkt í skúrinn er hægt að nálgast í heild sinni eða í klippum á hringbraut.is.