\"Þótt lýðskrumið hafi tekið völdin í umræðunni er með öllu óþarft að vera með einhverja feimni um staðreyndir þessa stóra máls nú þegar því er loks lokið,\" skrifar Þorsteinn Pálsson vegna greinar Steingríms J. Sigfússonar, fyrrverandi fjármálaráðherra um endalok Icesave.
Grein Steingríms birtist í Kjarnanum en þessi þingeyski stjórnmálamaður hefur ekki oftsinnis verið sagður hógvær í málflutningi. Þorsteini finnst svo vera í þessu tilviki; kostirnir í Icesave hafi verið tveir, að semja um endurgreiðslu eða stefna málinu í nokkurra ára óvissu - og niðurstaða málsins sýni að líklegt sé að samningar hefðu verið betri kostur fyrir þjóðarheildina.
Þorsteinn bendir á að Steingrímur komist að þeirri niðurstöðu að færa megi sterk rök fyrir því að erfitt sé að fullyrða hvor leiðin hafi verið þjóðhagslega hagkvæmari í þessu máli: \"Satt best að segja er þetta heldur hæversklegt,\" skrifar Þorsteinn og minnir á að Bretar og Hollendingar fái allar útgreiðslur sínar endurgreiddar með þokkalegum vöxtum og bætur vegna kostnaðar, en vel að merkja, bendir Þorsteinn á að þótt samningar hefðu trúlega þýtt heldur hærri vaxtagreiðslur komi óvissan um endalok málsins á móti sem hafi átt sinn þátt í að hagvöxtur hér á landi fór seinna af stað en ella hefði mátt vænta.
\"Fyrstu Icesave-samningarnir voru óaðgengilegir,\" skrifar Þorsteinn en segir síðasta samninginn sem legið hafi á borðinu hafa verið betri kost en þá óvissu að hafa málið opið til margra ára. Og það hafi ekki aðeins verið mat þáverandi ríkisstjórnarflokka: \"Sjálfstæðisflokkurinn var í stjórnarandstöðu á þessum tíma. Óhætt er að fullyrða að forysta stærsta stjórnarandstöðuflokksins hefði aldrei tekið þá ákvörðun að styðja síðustu útgáfu samningsins nema yfirgnæfandi líkur stæðu til þess að það væri betri kostur fyrir Ísland. Stjórnarandstöðuflokkar þurfa einfaldlega ekki að taka áhættu þegar þannig stendur á.\"
Hann segir að þótt báðar leiðirnar hafi þá verið undirorpnar nokkurri óvissu séu málalokin nú skýr vitnisburður um að afstaða formanns Sjálfstæðisflokksins og núverandi fjármálaráðherra á þeim tíma hafi verið yfirveguð og ábyrg: \"Og hún var huguð í ljósi þess að ágreiningur var um málið innan flokksins,\" bendir Þorsteinn á í þessum skrifum sínum og segir að líklega hafi það verið mistök vinstriflokkanna að fallast ekki á þá leið sem Sjálfstæðisflokkurinn bauð þeim upp á til að ljúka málinu, að bera gildistöku laganna undir þjóðaratkvæði. Þannig hefði vinstristjórnin ásamt Sjálfstæðisflokknum getað haft forystu um þá lýðræðislegu málsmeðferð sem í ljósi aðstæðna og alls aðdraganda niðurstöðunnar var óhjákvæmileg.
\"Hugsanlega hefði það dregið úr því að þjóðaratkvæðið yrði að hluta til uppreisn gegn ríkisstjórn sem þá þegar var orðin óvinsæl af ýmsum öðrum ástæðum,\" skrifar Þorsteinn í þessari glúrnu fréttaskýringu sinni um eftirmál Icesave, en hér sem oftar megi ekki gleyma meginatriði; hugsanlega sé það stærsta pólitíska hliðin á þessu máli að röksemdafærslan vannst fyrir EFTA-dómstólnum: \"Þannig var það í raun aðild Íslands að regluverki Evrópusambandsins um innri markaðinn sem leiddi til þess að lagarökum Breta og Hollendinga var hafnað og réttmæti þeirra lagasjónarmiða sem Ísland hélt fram fékkst staðfest.\"
Þorsteinn minnir popúlistanna á eftirfarandi atriði: \"Þetta er eitt sterkasta dæmið um gildi þess fyrir smáþjóð að taka virkan þátt í alþjóðasamstarfi sem byggir á sameiginlegum réttarreglum. Staða smáþjóða er jafnan sterkari í alþjóðlega viðurkenndu lagaumhverfi heldur en í deilum við voldugri þjóðir þar sem stærðarmunur ræður oftar úrslitum en réttarreglur.\"
Og greinin endar með þessum orðum: \"Í þessu ljósi er hálf broslegt þegar því er haldið fram í sömu andránni að hagsmunum Íslands sé betur borgið utan regluverks Evrópusambandsins en Ísland hafi samt unnið einn sinn stærsta sigur í milliríkjadeilu fyrir alþjóðlegum dómstóli sem dæmir eftir lagabókstaf þess.\"