End­ur­greiða 25 prósent við bóka­út­gáfu

Rík­is­stjórn­in ætl­ar að end­ur­greiða bóka­út­gef­end­um 25% af öll­um bein­um kostnaði við út­gáfu bóka frá og með 1. janú­ar 2019, seg­ir Lilja Dögg Al­freðsdótt­ir, mennta- og menn­ing­ar­málaráðherra, í sam­tali viðmbl.is. Hún mun leggja fram frum­varp þessa efn­is í næstu viku.

„Í raun og veru er þessi stuðning­ur meiri en að af­nema virðis­auka­skatt­inn,“ seg­ir Lilja í sam­tali við mbl.is, en í fjár­mála­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­inn­ar var greint frá því að áform um af­nám VSK af bók­um, sem rík­is­stjórn­in lofaði í stjórn­arsátt­mála sín­um, hefðu verið lögð á hill­una. Ráðherra seg­ir að bóka­út­gef­end­ur séu bet­ur sett­ir með þess­um beina stuðningi.

Nánar á

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2018/09/11/endurgreida_25_prosent_kostnadar/