Em: ísland mætir portúgölum

Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu mætir Portúgölum. Austurríkismönnum og Ungverjum í F-riðli á Evrópumeistaramótinu í knattspyrnu í París á næsta ári, en þetta er fyrsta stórmótið sem íslenska karlalandsliðið kemst á.

Ísland hefur fjórum sinnum mætt Portúgölum, sem er sterkasta lið riðilsins og jafn oft tapað, en gengið öllu betur gegn hinum tveimur liðinum í riðlinum, en þó ber þess að geta að allir þessir leikir fóru fram áður en uppgangur íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu hófst undir styrkri stjórn  lars Lagerbecks og Heimis Hallgrímssonar.

Riðlarnir eru eftirfarandi:

A-riðillFrakklandSvissAlbaníaAlbanía
B-riðillEnglandRússlandSlóvakíaWales
C-riðillÞýskalandÚkraínaPóllandNorður-Írland
D-riðillSpánnKróatíaTékklandTyrkland
E-riðillBelgíaÍtalíaSvíþjóðÍrland
F-riðillPortúgalAusturríkiUngverjalandÍSLAND