Allnokkur aukning var í aðsókn í Kvennaathvarfið á milli ára. 846 komur voru skráðar á árinu, 720 fóru í viðtöl og 126 dvöldu um tíma í Athvarfinu. Þetta kemur fram í ársskýrslu Samtaka um kvennaathvarf fyrir árið 2015.
Alls dvöldu 200 íbúar í athvarfinu á árinu, 126 konur og 74 börn. Dvalartími varði allt frá einum degi upp í 149 daga en að meðaltali dvaldi hver kona í athvarfinu í 19 daga en börn að meðaltali í 20 daga. Að meðaltali dvöldu 11 íbúar í húsinu á degi hverjum, 7 konur og 4 börn.
Konur í athvarfinu voru á aldrinum 16-82 ára en ofbeldismennirnir voru á aldrinum 18-83 ára. Börnin voru allt frá því að vera örfárra daga gömul. Nærri helmingur þeirra voru yngri en 6 ára, þar af 8 börn á fyrsta ári.
Langflestar kvennanna, eða 94%, nefna andlegt ofbeldi sem eina ástæðu komu í athvarfið, 60% hafa einnig verið beittar líkamlegu ofbeldi og 32% kynferðislegu ofbeldi. Hærra hlutfall en áður, eða 22% nefna ofbeldi gegn börnum sem eina ástæðu komu sem vonandi skapast af því að konur hafi í meira mæli litið svo á að ofbeldi á heimilinu sé í sjálfu sér ofbeldi gegn börnunum. Í fyrsta sinn var spurt sérstaklega um hrelliklám eða birtingar nektarmynda á netinu og/eða hótun um þær og sögðust 9% kvennanna hafa verið beittar ofbeldi af því tagi.
Tæpur helmingur ofbeldismannanna voru eiginmenn eða sambýlismenn kvennanna þegar þær komu í athvarfið en 23% voru að flýja fyrrverandi eigin-eða sambýlismenn. 16% komu vegna ofbeldis af hálfu kærasta eða fyrrverandi kærasta þar sem sambúð var ekki hafin.
Stór hluti kvennanna hafði þjáðst af kvíða, þreytu, ótta, svefnleysi, þunglyndi, höfuðverkjum og/eða vöðvabólgum vikurnar fyri r komu í athvarfið. Rétt um 40% höfðu ítrekað hugleitt sjálfsvíg vikurnar fyrir komu.
Rúm 20% kvennanna höfðu kært ofbeldið til lögreglu, það hlutfall hefur aldrei verið hærra í sögu athvarfsins.
Rúm 20% dvalarkvenna fóru aftur heim til ofbeldismannsins eftir dvöl í Kvennaathvarfinu, en 16% fóru heim eftir að ofbeldismaðurinn hafði verið fjarlægður af heimilinu. 10 % höfðu flúið heimili þar sem ofbeldismaðurinn bjó ekki og fóru aftur heim að lokinni dvöl. Þeim sem fara í nýtt húsnæði fækkar á milli ára, voru einungis 10% enda er leigumarkaðurinn afar erfiður. Stærri hópur en áður, 19% leitaði á náðir ættingja eða vina að lokinni dvöl.